Í 33. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 14.622.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
11.5.2028 13:15 600.000 4,84 2.904.000
12.8.2025 10:37 600.000 4,87 2.922.000
13.8.2025 15:26 600.000 4,87 2.922.000
14.8.2025 14:05 600.000 4,85 2.910.000
15.8.2025 10:29 600.000 4,94 2.964.000
Samtals 3.000.000   14.622.000 

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.

Nova Klúbburinn átti 33.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 36.000.000 hluti, eða um 1,01% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 174.294.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á [email protected]



Please visit:

Our Sponsor

By admin