Hampiðjan hf. mun birta uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2025 eftir lokun markaða miðvikudaginn 28. maí.

Fjárfestakynning verður haldin sama dag, klukkan 16:15 í höfuðstöðvum félagsins að Skarfagörðum 4. Kynningunni verður jafnframt streymt og verður vefstreymið aðgengilegt á heimasíðu félagsins fyrir fundinn.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar á meðan á fundi stendur á netfangið [email protected]

Árshlutareikningurinn verður aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar. Upptaka af kynningunni verður einnig aðgengileg á heimasíðunni að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson, forstjóri, í síma 664-3361



Please visit:

Our Sponsor

By admin