Í 35. viku 2025 keypti Festi alls 170.000 eigin hluti fyrir 50.595.000 kr. eins og hér segir:
Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) |
35 | 25.8.2025 | 13:16:58 | 40.000 | 301,00 | 12.040.000 |
35 | 26.8.2025 | 13:54:46 | 40.000 | 299,00 | 11.960.000 |
35 | 27.8.2025 | 10:10:31 | 30.000 | 297,00 | 8.910.000 |
35 | 28.8.2025 | 13:47:33 | 30.000 | 296,50 | 8.895.000 |
35 | 29.8.2025 | 10:28:29 | 30.000 | 293,00 | 8.790.000 |
170.000 | 50.595.000 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/214, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin þá átti Festi 1.561.226 hluti eða 0,5% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 1.485.000 eigin hluti fyrir 443.670.000 kr. og á í dag 1.731.226 hluti sem samsvarar 0,55% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 27. júní 2025 í tilkynningu til Nasdaq OMX Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 2.500.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 0,80% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 800 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. ([email protected]).
Please visit:
Our Sponsor