Í vikum 19 og 20 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 14.902.447 eigin hluti að kaupverði 202.578.769 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð
5.5.2025 09:49:56  1.000.000     13,70  13.700.000    
5.5.2025 11:39:44  1.000.000     13,70  13.700.000    
5.5.2025 14:14:34  500.000     13,65  6.825.000    
6.5.2025 09:36:56  1.000.000     13,60  13.600.000    
6.5.2025 14:53:14  2.000.000     13,58  27.150.000    
7.5.2025 10:10:53  1.000.000     13,58  13.575.000    
7.5.2025 12:41:29  2.000.000     13,58  27.150.000    
7.5.2025 15:16:15  3.000.000     13,55  40.650.000    
8.5.2025 09:44:08  1.000.000     13,68  13.675.000    
8.5.2025 14:15:37  2.000.000     13,50  27.000.000    
12.5.2025 13:18:36  402.447     13,80  5.553.769    
Samtals   14.902.447   202.578.769

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 27. febrúar sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024.

Kvika hefur nú keypt samtals 163.590.409 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 3,533% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 2.500.000.000 kr. Eftir kaupin eru eigin hlutir Kviku samtals 134.410.410 hlutir eða sem nemur 2,902% af útgefnum hlutum í félaginu.

Endurkaup samkvæmt áætluninni máttu nema að hámarki 2.500.000.000 að kaupvirði og er endurkaupum því lokið.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014. sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu [email protected]



Please visit:

Our Sponsor

By admin