Í 35. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 14.934.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
25.8.2025 | 09:39 | 600.000 | 5,00 | 3.000.000 |
26.8.2025 | 09:49 | 600.000 | 4,99 | 2.994.000 |
27.8.2025 | 09:38 | 600.000 | 4,98 | 2.988.000 |
28.8.2025 | 10:24 | 600.000 | 4,96 | 2.976.000 |
29.8.2025 | 09:36 | 600.000 | 4,96 | 2.976.000 |
Samtals | 3.000.000 | 14.934.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 12. maí 2025. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2026.
Nova Klúbburinn átti 39.000.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 42.000.000 hluti, eða um 1,18% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 204.057.000 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á [email protected]
Please visit:
Our Sponsor