Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2025 var samþykktur á stjórnarfundi þann 7. maí 2025.
Rekstrartekjur samstæðunnar námu 5.220 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025 samanborið við 5.365 m.kr. á sama tímabili 2024 og dragast saman um 2,7%. Jákvæð þróun er hins vegar í kjarnastarfsemi fjarskipta, þar sem bæði tekjur og fjöldi viðskiptavina aukast á milli ársfjórðunga. Þá hafa tekjur af Stöð 2+ einnig aukist og fjöldi áskrifenda hefur aldrei verið meiri. Auglýsingatekjur lækkuðu um 110 m.kr. milli fyrsta ársfjórðungs 2025 og sama tímabils 2024. Hluti skýrist af einskiptistekjum á fyrra tímabili, en aðalástæðan er umfangsmiklar breytingar á skipulagi einingarinnar til að styrkja reksturinn til framtíðar. Auk þess er samdráttur í reikitekjum vegna lækkunar á tekjum af erlendum ferðamönnum.
EBITDAaL nam 582 m.kr. á fjórðungnum, samanborið við 750 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2024. Til viðbótar við ofangreinda liði var eignfærsla á launakostnaði á tímabilinu 86 m.kr. lægri en á sama tímabili í fyrra.
Fjárfestingar námu 479 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025, samanborið við 943 m.kr. á sama tímabili í fyrra. Lækkunin skýrist einkum af minni eignfærslu launakostnaðar og því að stórt innleiðingarverkefni var í gangi á sama tímabili árið 2024. Þá vegur einnig inn að sýningaréttargreiðslur dreifast öðruvísi á almanaksárið að þessu sinni með stærri hluta kostnaðar síðar á árinu, einkum vegna Enska boltans.
EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum nam 102 m.kr. á ársfjórðungnum samanborið við -193 m.kr. á sama tímabili í fyrra.
Rekstrartap (EBIT) nam 139 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2025 samanborið við 47 m.kr. rekstrarhagnað á sama tímabili 2024 og er í takti við áætlanir félagsins.
Tap eftir skatta nam 344 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi ársins samanborið við 153 m.kr. tap á sama tímabili 2024.
Afkomuspá félagsins er óbreytt og er gert ráð fyrir að EBIT ársins 2025 verði á bilinu 800-1.200 m.kr. Félagið birtir nú samhliða ársfjórðungsuppgjörinu umfangsmeiri afkomuspá fyrir árið 2025.
Fjárhagsstaða félagsins var styrkt á fjórðungnum þegar gengið var frá framlengingu á lánalínum félagsins.
Hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga námu 5.901 m.kr. í lok ársfjórðungsins sem var lækkun um 215 m.kr. Hreinar vaxtaberandi skuldir með leiguskuldbindingum námu 18.100 m.kr. og lækka um 273 m.kr. frá upphafi árs.
Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri
„Afkoma fyrsta ársfjórðungs 2025 er í samræmi við áætlanir og endurspeglar bæði áframhaldandi aðlögun okkar að krefjandi markaðsaðstæðum og þá stefnu félagsins að byggja upp sjálfbæran og arðbæran rekstur til framtíðar. Líkt og áður hefur komið fram, gerðum við ráð fyrir kostnaðarþunga vegna innleiðingar nýrrar stefnu, og gert er ráð fyrir að annar ársfjórðungur verði einnig þungur i kostnaði áður en við njótum fulls rekstrarlegs ávinnings af þeim breytingum sem við höfum ráðist í.
Heildartekjur samstæðunnar námu rúmum 5,2 milljörðum króna. Í ljósi þrýstings á hagnaðarhlutföll höfum við ráðist í árangursríkar hagræðingaraðgerðir sem hafa haft jákvæð áhrif á sjóðstreymi og fjármögnunarstöðu félagsins. Félagið hefur markvisst fjárfest í innviðum og tæknilausnum sem styðja við frekari tekjuvöxt á næstu mánuðum. Samruni dótturfélaga, sem nú er í fullum gangi, er þáttur í að einfalda og straumlínulaga rekstur.
Með áherslubreytingum í framsetningu lykiltalna og kynningu á EBITDAaL sem nýjum megin árangursmælikvarða er markmiðið að veita skýrari og gagnsærri mynd af undirliggjandi rekstri. Þetta er liður í að bæta upplýsingagjöf félagsins til fjárfesta og hagsmunaaðila og má gera ráð fyrir að framsetning í uppgjöri fyrri árshelmings verði til frekari bóta í takt við þessa þróun. Í hálfsársuppgjörinu munum við enn fremur birta starfsþáttauppgjör (segment reporting) til að varpa enn skýrara ljósi á frammistöðu einstakra hluta starfseminnar.
Viðskiptavinurinn er ávallt í forgrunni hjá Sýn, sem þjónustar bæði fyrirtæki og einstaklinga víðsvegar um landið í fjarskiptum og fjölmiðlun. Miðlar Sýnar ná til um 74% þjóðarinnar á hverjum degi, seldar eru um 75.000 áskriftir í sjónvarpi og um 100.000 viðskiptavinir eru í reikningsviðskiptum við félagið. Undirbúningur fyrir endurkomu Enska boltans í ágúst er í fullum gangi. Við teljum það mikilvægt sóknarfæri sem styður við markmið okkar um að auka markaðshlutdeild og styrkja arðsemi félagsins á seinni hluta ársins.”
Fjárhagsdagatal 2025
Birtingum í fjárhagsdagatalinu hefur verið seinkað um einn dag og munu þær framvegis verða á fimmtudögum.
-
- Afkoma 2F 2025 28. ágúst 2025
- Afkoma 3F 2025 6. nóvember 2025
- Afkoma 4F og ársuppgjör 2025 19. febrúar 2026
- Aðalfundir 2026 16. mars 2026
Frekari upplýsingar
- Sem fyrr verður ekki haldinn fjárfestafundur til að kynna uppgjör 1. ársfjórðungs. Næsti fjárfestafundur verður haldinn 28. ágúst en fjárfestar geta sent fyrirspurnir á [email protected] eða óskað eftir fundi.
- Nánari upplýsingar má nálgast á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Please visit:
Our Sponsor