Árshlutareikningur Byggðastofnunar janúar – júní 2024

Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar – júní 2024, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 29. ágúst 2024.

Árshlutareikningur Byggðastofnunar fyrir tímabilið janúar – júní 2024 er fyrsta árshlutauppgjör stofnunarinnar sem er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla fyrir opinbera aðila sem miða við rekstrargrunn (e. accrual basis IPSAS, International Public Sector Accounting Standards, vísað til sem “IPSAS”).

Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfram sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl atvinnulífs á landsbyggðunum.

Afkoma tímabilsins var jákvæð um 1.090 milljónir króna á móti jákvæðri afkomu upp á 285 milljónir króna á sama tímabili 2023. Eiginfjárhlutfall í lok árs skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 24,64% í lok júní.

Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við landshlutasamtök, sveitarfélög og aðra haghafa. Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins.   Þá annast stofnunin framkvæmd laga um póstþjónustu og hafa eftirlit með póstþjónustu eins og nánar er kveðið á um í lögum um það efni. Skrifstofa stofnunarinnar er á Sauðárkróki.

Helstu niðurstöður úr árshlutareikningi

  • Afkoma tímabilsins var jákvæð um 1.090 milljónir króna.
  • Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 24,64% en skal að lágmarki vera 8%.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 771 milljón króna eða 50% af vaxtatekjum, samanborið við 557 milljónir króna (39% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur á sama tímabili 2023.
  • Laun og annar rekstrarkostnaður nam 350 milljónum króna samanborið við 326 milljónir árið 2023.
  • Eignir námu 28.393 milljónum króna og hafa hækkað um 3.057 milljónir frá árslokum 2023. Þar af voru útlán 24.237 milljónir samanborið við 22.071 milljónir í árslok 2023.
  • Skuldir námu 22.604 milljónum króna og hækkuðu um 1.967 milljón frá áramótum.

Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Arnar Már Elíasson forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu [email protected]

Lykiltölur úr árshlutareikningi og samanburður við fyrri ár

  30.6.2024 2023
  Þús. kr. Þús. kr.
Yfirlit um afkomu    
Vaxtatekjur…………………………………………. 1.533.732 2.706.642
Vaxtagjöld………………………………………….. 763.049 1.463.293
Hreinar vaxtatekjur………………………………. 770.683 1.243.349
Aðrar rekstrartekjur………………………………. 426.363 656.934
Hreinar rekstrartekjur……………………………. 1.197.046 1.900.283
     
Önnur rekstrargjöld………………………………. 106.729 1.196.783
Afkoma ársins…………………………………… 1.090.317 703.500
     
Með rekstrargjöldum eru færð framlög í afskriftareikning útlána lánsloforða og annarra krafna -464.170 164.172
     
     
Efnahagsreikningur 30.6.2024 31.12.2023
Eignir    
Handbært fé………………………………………… 1.737.413 926.930
Markaðsskuldabréf………………………………… 349.979 340.013
Aðrar kröfur………………………………………… 10.424 25.296
Hlutabréf…………………………………………….. 317.846 285.687
Fullnustueignir……………………………………… 10 10
Hlutdeildarfélög……………………………………. 969.649 904.568
Útlán til viðskiptavina…………………………….. 24.237.725 22.071.447
Varanlegir rekstrarfjármunir……………………. 769.619 781.796
Eignir samtals…………………………………… 28.392.666 25.335.747
     
Skuldir og eigið fé    
Lántökur og skuldabréfaútgáfur………………… 21.340.487 19.901.162
Óráðstöfuð framlög……………………………….. 856.557 529.287
Aðrar skuldir……………………………………….. 406.966 206.960
Skuldir samtals…………………………………. 22.604.010 20.637.408
     
Eigið fé    
Eiginfjárframlag……………………………………. 7.800.000 7.800.000
Uppsöfnuð afkoma………………………………… -2.011.344 -3.101.661
Eigið fé samtals……………………………………. 5.788.656 4.698.339
     
Skuldir og eigið fé samtals…………………. 28.392.666 25.335.747
     
Sjóðstreymi 30.6.2024 2023
Handbært fé (-til) frá rekstri……………………. -437.088 -913.756
Fjárfestingarhreyfingar…………………………… -8.202 0
Fjármögnunarhreyfingar…………………………. 1.260.297 163.058
Hækkun/(-lækkun) á handbæru fé……………. 815.007 -750.698
Gengismunur á handbæru fé……………………. -4.524 -8.709
Handbært fé í ársbyrjun…………………………. 926.930 1.686.337
Handbært fé í lok árs…………………………. 1.737.413 926.930
     
Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði 24,64% 22,64%
  • Fréttatilkynning v árshlutareiknings 2024
  • Byggðastofnun Árshlutauppgjör 30.06.2024


Please visit:
Our Sponsor

By admin

Leave a Reply