Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um þann 29. ágúst 2024 er nú lokið. 

Í viku 40 keypti Kaldalón hf. 104.837 eigin hluti að kaupvirði kr. 2.191.093 skv. sundurliðun hér á eftir;

Vika Dagsetning Tími Magn Verð Kaupverð
Vika 40 30.9.2024 9:56 104.837 20,9 2.191.093
      104.837   2.191.093

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Kaldalóns hf. sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 29. ágúst 2024. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki ná 17.000.000 hluta, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði ekki meiri en kr. 300.000.000. Framkvæmd áætlunarinnar hófst miðvikudaginn 30. ágúst 2024 og mun áætlun vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó ekki lengur en til 31. desember 2024.

Kaldalón hf. átti 32.548.718 eigin hluti fyrir viðskiptin en að þeim loknum 32.653.555 eða sem nemur 2,92% af útgefnum hlutum í félaginu.

Kaldalón hefur keypt samtals 15.603.566 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,39 % af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra kr. 299.999.960.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir,
Jón Þór Gunnarsson, forstjóri
[email protected]


Please visit:
Our Sponsor

By admin

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *