Í 39. viku 2024 keypti Síminn hf. 5.000.000 eigin hluti að kaupverði 52.200.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð Kaupverð (kr.) Eigin hlutir eftir viðskipti
23.9.2024 10:42 1.000.000 10,400 10.400.000 115.778.744
24.9.2024 10:17 1.000.000 10,500 10.500.000 116.778.744
25.9.2024 09:44 1.000.000 10,400 10.400.000 117.778.744
26.9.2024 09:39 1.000.000 10,400 10.400.000 118.778.744
27.9.2024 09:46 1.000.000 10,500 10.500.000 119.778.744
    5.000.000   52.200.000 119.778.744

Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 28. ágúst 2024. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2025, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Síminn átti 114.778.744 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 119.778.744 eða sem nemur 4,52% af útgefnum hlutum í félaginu.

Síminn hefur keypt samtals 15.000.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,57% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 152.775.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi [email protected].


Please visit:
Our Sponsor

By admin

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *